PERSÓNUVERND · VAFRAKÖKUR · TÖLFRÆÐI
Hvað Drikk skráir.
Við teljum heimsóknir til að bæta vefinn: hversu margir koma, að hverju er leitað og hvaða drykkir eru vinsælastir. Við skráum hvorki nafn, netfang, IP-tölu né neitt sem rekja má til þín.
Þitt val
Vafrakakan sem man fyrri heimsóknir er aðeins vistuð ef þú samþykkir. Þú getur breytt valinu hvenær sem er, líka með „Vafrakökur“ neðst á hverri síðu. Ef þú afþakkar er henni eytt strax.
Vafrinn þinn sendir merki um að ekki megi fylgjast með (Global Privacy Control eða Do Not Track). Drikk sendir þá engar upplýsingar um heimsóknir og vistar enga vafraköku til tölfræði.
Nafnlaus talning heimsókna
Þegar þú skoðar síðu sendir vafrinn stutta tilkynningu til Drikk. Hún inniheldur aðeins:
- tegund síðu (forsíða, leit, flokkur, vara, verslanir, verðsamanburður eða ódýrast á millilítra),
- leitarorð, flokk og verslun ef þú leitar eða síar, og fjölda niðurstaðna,
- hvaða vöru þú opnar eða velur úr leitartillögum,
- heiti vefsins sem vísaði þér hingað, án slóðar (t.d. google.com),
- hvort skjárinn er sími, spjaldtölva eða tölva, metið út frá breidd glugga.
Til að telja einstaka gesti hvers dags reiknar vefþjónninn kóða (hakkagildi) úr IP-tölu, upplýsingum um vafra og slembilykli sem gildir í einn dag. IP-talan og vafraupplýsingarnar eru ekki vistaðar. Lyklinum er eytt þegar nýr dagur hefst, og eftir það er ekki hægt að tengja kóðann við IP-tölu eða við heimsóknir annarra daga.
Við byggjum á lögmætum hagsmunum af því að skilja hvernig vefurinn er notaður og bæta hann (f-liður 1. mgr. 6. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar). Engin vafrakaka er notuð til þessarar talningar.
Vafrakökur og geymsla í vafranum
- drikk_consent
- Vafrakaka sem geymir svar þitt, „já“ eða „nei“, svo spurningin birtist ekki aftur. Nauðsynleg. Gildir í 365 daga eftir já og 180 daga eftir nei.
- drikk_visits
- Aðeins með samþykki þínu. Geymir dagsetningu fyrstu og síðustu heimsóknar, fjölda daga sem þú hefur komið og bil frá síðustu heimsókn. Ekkert auðkenni. Drikk fær aðeins að vita hve marga daga þú hefur komið og hve langt er síðan síðast, svo við sjáum hlutfall nýrra og endurkominna gesta. Gildir í 365 daga frá síðustu heimsókn.
- drikk-basket-v1
- Geymsla í vafranum fyrir körfuna á síðunni um verðsamanburð. Hún er aðeins í þínum vafra og er aldrei send til Drikk.
- drikk-public-v6:…
- Síðustu leitarniðurstöður, geymdar í vafranum svo síðan birtist hraðar og virki án nettengingar. Ekki send til Drikk.
Það sem við skráum ekki
- IP-tölur, nafn, netfang eða önnur auðkenni,
- innihald körfunnar eða aðrar síur en flokk og verslun,
- slóðir á öðrum vefjum sem vísuðu þér hingað,
- innslátt í leitarreitinn fyrr en þú leitar eða velur tillögu.
Vafrar sem senda merki um að ekki megi fylgjast með (Global Privacy Control eða Do Not Track) senda ekkert. Sama gildir um sjálfvirka vafra og þekkt leitarvélaforrit.
Varðveisla og réttindi
Talningin er varðveitt til að sjá þróun yfir tíma. Þar sem ekki er hægt að tengja hana við þig getum við hvorki fundið, afhent né eytt færslum um einstaka gesti. Þú getur hvenær sem er eytt vafrakökunum í stillingum vafrans eða afþakkað hér að ofan.
Ef þú telur að vinnsla persónuupplýsinga brjóti gegn lögum getur þú kvartað til Persónuverndar.